Ég vissi það
Vísindamenn við Edinborgarháskóla eru búnir að svara spurningunni sem ég spurði fyrir nokkru. Kettir geta haft ofnæmi fyrir mönnum.
Sumir kettir hafa ofnæmi fyrir mönnum
Alkunnugt er að ýmsir menn þola illa fínleg hár af kattarfeldi, en sérfræðingar við Edinborgarháskóla segja suma ketti, og ýmis önnur dýr, hafa ofnæmi fyrir mönnum. Þannig valdi húðfrumur og hár manna því að 2% katta eigi við ýmsa ofnæmiskvilla að stríða, svo sem kláða, hnerra og öndunarsjúkdóma á borð við asma.
Þá bæti ekki úr skák séu kettirnir lokaðir inni í sóðalegum mannabústöðum þar sem rykmottur séu undir húsgögnum og í hornum og tóbaksreykur liggi í loftinu.
1 Comments:
Þeir þarna við háskólann eru greinilega að lesa bloggið þitt, þú skalt spyrja fleiri spurninga og athuga hvort svarið komi ekki bara fljótlega.
Post a Comment
<< Home