javascript hit counter

Sunnan að norðan

Ég er Akureyringur, MA-ingur, líffræðingur (B.s), brjálaður heklari og bakari af Laxamýraættinni. Ég er í doktorsnámi við HÍ en þar sem ég var orðin leið á krílaborginni Reykjavík þá kom ég mér bakdyramegin inn í Yale.

Name:
Location: New Haven

Tuesday, August 02, 2005

Fréttnæmt

Verslunarmannhelgin hefur greinilega gengið vel fyrir sig. Aðalfréttir af gleðskap helgarinnar eru að áðnamöðkum var stolið í Búðardal og að Árni Johnsen löðrungaði Hreim !!! Fyrri fréttin styrkir mig en í þeirri trú að lögreglulið Búðardals er vel vaxið þeirri miklu ábyrgð sem starfið kallar á. Seinni fréttin sýnir að næstleiðinlegasti skemmtikraftur landsins finnst leiðinlegasti skemmtikraftur landsins vera leiðinlegur. Ekki það að ég sé að mæla því bót að fólk gangi um og löðrungi samferðamenn sína en kommon hvað voru margir barðir í kássu heima um helgina án þess að það rataði í fréttir.

5 Comments:

Blogger Picciotta said...

já löggan í Búðardal var að meika það um helgina, upprætti málið og kom möðkunum til síns heima, alveg merkilegur fréttaflutningur það!!

4:23 AM  
Blogger Sunna Helgadóttir said...

Og það besta var að fréttin var bæði á mbl.is og í fréttablaðinu. Greinilega mikil gúrkutíð í gangi.

6:26 AM  
Anonymous Anonymous said...

Árni Johnsen tekur bara hlutina í sínar hendur og það bókstaflega. Held að hann hafi nú gefið Páli Óskari utanundir þarna um árið. Skýr skilaboð "Ef þú ferð ekki eftir því sem Árni segir þá færðu bara einn á hann"hehehe

8:25 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hmm já þessi frétt hefur vakið mikla lukku, þetta var aðalumræðuefnið hjá okkur í vinnunni á þriðjudaginn enda hálffurðulegt að þessi frétt skuli vera á forsíðu

9:14 AM  
Anonymous Anonymous said...

humm já það hefur ekki mikið gerst ef þetta er eina fréttaefnið eftir helgina en ég reindar skil aumingja árna mjög vel enda er þetta óneitanlega tilhneigingin eftir að hafa hlustað á gaulið í hreimi.

Thrandur

12:38 PM  

Post a Comment

<< Home